03.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Yfirgaf Frankfurt fyrir Milan

Mynd: Eintracht Frankfurt

Mynd: EPA

Mynd: Eintracht Frankfurt
AC Milan er búið að semja við Markus Krösche um kaup og kjör eftir að hann sagði starfi sínu sem yfirmaður fótboltamála hjá Eintracht Frankfurt lausu.

TENGT EFNI
Styðja við Amorim og undirbúa leikmannakaup
Krösche, sem hefur meðal annars starfað sem þjálfari varaliðs Paderborn og aðstoðarþjálfari hjá Bayer Leverkusen, hefur unnið sér inn gott orðspor í fótboltaheiminum fyrir sitt frábæra starf hjá Frankfurt. Hann krækti í leikmenn á borð við Hugo Ekitike, Randal Kolo Muani, Omar Marmoush og Willian Pacho sem voru svo seldir frá félaginu fyrir margfalt hærri upphæðir en þeir höfðu verið keyptir fyrir.
Milan hefur verið án yfirmanns fótboltamála eftir að Igli Tare var rekinn í lok síðasta tímabils.
Félagið náði munnlegu samkomulagi við Krösche í sumar og fékk hann að yfirgefa Frankfurt þegar þýska félaginu tókst að semja við arftaka hans, Joti Chatzialexiou hjá Nürnberg, sem hefur störf eftir lok janúargluggans.
Milan hefur verið að gera fína hluti á upphafi nýs tímabils undir stjórn Rúben Amorim. Félagið keypti öfluga leikmenn síðasta sumar og stefnir á enn frekari kaup í janúarglugganum.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.