Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. desember 2020 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik Arsenal og Rapid Vín: Rúnar fær 7 - Lacazette bestur
Rúnar Alex kastar boltanum í leiknum
Rúnar Alex kastar boltanum í leiknum
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson fær 7 fyrir sína frammistöðu í 4-1 sigri Arsenal á Rapid Vín í Evrópudeildinni í kvöld en það er Sky Sports sem sér um að gefa einkunnir.

Alexandre Lacazette var maður leiksins og fær 8 en hann gerði fyrsta mark leiksins og var afar góður gegn austurríska liðinu. Eddie Nketiah fær einnig 8 en hann komst einnig á blað.

Shkodran Mustafi er eini leikmaðurinn í liði Arsenal sem fær undir 7 en hann fékk 6.

Arsenal: Rúnarsson (7), Cedric (6), Mustafi (7), Pablo Mari (7), Kolasinac (7), Maitland-Niles (7), Elneny (7), Nketiah (8), Pepe (7), Nelson (7), Lacazette (8).
Varamenn: Ceballos (6), Willian (6), Smith-Rowe (7), Chambers (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner