Colleen Kennedy hefur skrifað undir samning við FH en þessi samningur gildir út næsta sumar.
Colleen lék með Þór/KA í Pepsi-Max deildinni síðasta sumar en mun nú reyna fyrir sér í næst efstu deild.
Colleen var mikilvægur hluti af Þór/KA síðasta sumar og lék alla deildarleiki liðsins ásamt því að skora tvö mörk.
Tilkynning FH:
Colleen Kennedy hefur skrifað undir samning við FH og mun því leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Hún þekkir vel til íslenska boltans þar sem hún spilaði með Þór/KA í Pepsí Max deildinni á síðasta keppnistímabili. Hún spilaði alla leiki Þórs/KA í deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim tvö
mörk.
Colleen er öflugur kantmaður sem mun vafalítið styrkja FH liðið í þeirra baráttu sem framundan er í Lengjudeildinni. Við bjóðum hana velkomna til leiks og hlökkum til að sjá hana í FH búningnum næsta sumar.
Athugasemdir