Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. mars 2021 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Skemmtileg hornspyrnutaktík í Tékklandi
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var ansi skemmtilegt mark skorað í tékknesku bikarkeppninni á dögunum.

Slavia Karlovy Vary úr C-deild heimsótti meistarana í Slavia Prag. Þetta var mikill markaleikur en hann endaði að lokum með 10-3 sigri Slavia Prag, hvorki meira né minna.

Slavia Karlovy Vary skoraði þrjú mörk í leiknum en eitt þeirra var líklega betra en hin tvö.

Það mark kom í stöðunni 7-1 og var það eftir hornspyrnu. Leikmenn liðsins hópuðu sér saman og sneru sér í hringi áður en boltinn fór inn á teiginn.

Þetta virkaði fullkomlega, beint af æfingasvæðinu.

Markið má sjá hér að neðan.

Funny FC Slavia Karlovy Vary (3rd division) corner kick strategy against SK Slavia Prague (national champion) in Czech national cup. from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner