Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 04. mars 2023 08:15
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Heimir Guðjóns gestur á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, verður gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Þátturinn er á sínum stað milli 12 og 14 alla laugardaga.

Elvar Geir og Benedikt Bóas verða í hljóðveri á morgun en Tómas Þór verður floginn á vit ævintýranna á Anfield þar sem Liverpool mætir Manchester United á morgun sunnudag.

Sá leikur kemur auðvitað við sögu í þættinum og þá verður farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner