Spánn: Villarreal aftur í Evrópusæti


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænsku deildinni þar sem Villarreal vann sinn annan leik í röð og er komið aftur í Evrópusæti eftir að hafa dregist afturúr í febrúar.
Villarreal tapaði fjórum leikjum í röð og datt þar með úr Meistaradeildarsæti en liðið hangir enn í Evrópudeildarsæti, með 37 stig eftir 24 umferðir.
Liðið hafði betur á útivelli gegn fallbaráttuliði Almeria í dag og vann þökk sé mörkum frá Gerard Moreno og Jose Luis Morales eftir stoðsendingar frá Samuel Chukwueze.
Mörkin komu seint í leiknum en voru fyllilega verðskulduð eftir yfirburðina sem Villarreal sýndi. Almeria situr eftir með 25 stig úr 24 leikjum, einu stigi frá fallsvæðinu.
Almeria 0 - 2 Villarreal
0-1 Gerard Moreno ('76)
0-2 Jose Luis Morales ('88)
Þá hafði Getafe betur í fimm marka fallbaráttuslag gegn Girona, sem er í eigu City Football Group.
Enes Unal skoraði tvennu og átti Borja Mayoral eitt mark og eina stoðsendingu og var staðan 3-0 fyrir Getafe í leikhlé.
Girona tók völdin í síðari hálfleik og náði að minnka muninn niður í eitt mark en komst ekki nær. Lokatölur urðu 3-2 og klifrar Getafe úr fallsæti með þessum sigri. Getafe á 25 stig á meðan Girona er með 30 stig.
Getafe 3 - 2 Girona
1-0 Enes Unal ('2)
2-0 Enes Unal ('14, víti)
3-0 Borja Mayoral ('43)
3-1 Taty Castellanos ('54)
3-2 Miguel Gutierrez ('80)


Mynd: EPA
La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 11 | +34 | 30 |
| 2 | Atletico Madrid | 11 | +14 | 28 |
| 3 | Real Madrid | 11 | +18 | 27 |
| 4 | Betis | 11 | +3 | 23 |
| 5 | Real Sociedad | 11 | 0 | 19 |
| 6 | Sevilla | 11 | -2 | 17 |
| 7 | Athletic | 10 | +4 | 15 |
| 8 | Deportivo | 11 | +1 | 14 |
| 9 | Villarreal | 11 | 0 | 12 |
| 10 | Celta | 11 | 0 | 12 |
| 11 | Alaves | 11 | -2 | 12 |
| 12 | Vallecano | 10 | -5 | 12 |
| 13 | Getafe | 11 | -8 | 12 |
| 14 | Espanyol | 11 | -1 | 11 |
| 15 | Osasuna | 11 | -11 | 11 |
| 16 | Racing Santander | 11 | -14 | 11 |
| 17 | Elche | 11 | -4 | 10 |
| 18 | Levante | 11 | -5 | 10 |
| 19 | Valencia | 11 | -9 | 9 |
| 20 | Malaga | 11 | -13 | 5 |
