Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. maí 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Bayern staðfestir að Javi Martínez fari í sumar
Mynd: Getty Images
Bayern München tilkynnti í dag að Spánverjinn Javi Martínez muni yfirgefa þýska félagið þegar samningur hans rennur út í lok tímabilsins.

Martínez hefur verið níu ár hjá félaginu og unnið fjölda titla.

„Ég er mjög stoltur og ánægður yfir þvíu að hafa verið hluti af Bayern fjölskyldunni í níu ár. Ég vil þakka þessu frábæra félagi og stuðningsmönnum þess," segir Martínez.

Þessi 32 ára varnar- og miðjumaður hefur spilað 266 leiki í öllum keppnum fyrir Bæjara síðan hann kom 2012 og hefur unnið þýsku Bundesligunni á öllum tímabilunum. Þá vann hann Meistaradeildina með liðinu 2013 og 2020.

Hann hefur verið í hlutverki varaskeifu á þessu tímabili og leikið sautján leiki í deildinni. Bayern er með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner