Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. maí 2022 15:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍBV fær varnarmann frá Svíþjóð (Staðfest)
Mynd: ÍBV
ÍBV hefur fengið liðsstyrk til sín fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna. Jessika Pedersen hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið.

Jessika er 28 ára og getur leikið í öllum stöðunum í varnarlínunni.

Jessika lék síðast hjá IFK Kalmar en liðið leikur í efstu deild í Svíþjóð á þessu tímabili. Hún kemur til Vestmannaeyja á morgun og er nú þegar komin með leikheimild með liðinu.

Hún gæti komið við sögu í næsta leik liðsins gegn KR á mánudaginn er liðin mætast á Meistaravöllum.

Þess má geta að Jessika er fyrirsæta í sínum frítíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner