Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. maí 2022 22:32
Brynjar Ingi Erluson
Ræðir myndina sem fór á flug um netheima - „Þetta var bara mynd með vinum mínum"
Carlo Ancelotti lítur út eins og einhverskonar Guðfaðir á myndinni
Carlo Ancelotti lítur út eins og einhverskonar Guðfaðir á myndinni
Mynd: Real Madrid
Mynd af Carlo Ancelotti og leikmönnum Real Madrid náði flugi á netheimum eftir fögnuð þeirra um síðustu helgi er liðið varð spænskur meistari en hann hefur nú útskýrt þessa ágætu mynd.

Ancelotti var með sólgleraugu og vindil og skartaði trefli frá Real Madrid en þessi mynd varð einhverskonar farandsbrandari (e. meme) á netheimum.

Það voru flestir sammála um það að Ancelotti hafi verið ekkert eðlilega svalur á myndinni sem hann tók með vinum sínum eins og hann orðaði sjálfur.

Ancelotti er á leið í fimmta úrslitaleik sinn í Meistaradeildinni eftir sigur liðsins á Manchester City í kvöld og tók sér tíma að útskýra myndina í viðtali við Movistar.

„Neinei, ég reyki ekki vindla. Þetta var bara mynd með vinum mínum. Já, þessir leikmenn eru vinir mínir," sagði Ancelotti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner