Robin Olsen er genginn til liðs við Aston Villa frá Roma. Kaupverðið er ekki gefið upp en talið vera í kring um 3 milljónir punda.
Olsen er 32 ára gamall og gekk til liðs við Roma frá FC Kaupmannahöfn árið 2018. Hann lék 27 leiki tímabilið 2018/19 en hefur verið á láni síðan þá, hjá Cagliari, Everton, Sheffield og Villa.
Olsen gekk til liðs við Aston Villa á láni frá Roma í janúar. Hann var á láni hjá Sheffield United en skipti svo yfir til Villa.
Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Villa í loka umferðinni í 3-2 tapi gegn Manchester City.
Athugasemdir