Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 04. júní 2022 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Shakira og Pique hætt saman eftir að upp komst um framhjáhald
Pique og Shakira
Pique og Shakira
Mynd: Getty Images
Gerard Pique, leikmaður Barcelona og söngkonan Shakira eru skilin eftir að upp komst um framhjáhald leikmannsins. Þetta tilkynnti söngkonan.

„Við staðfestum með eftirsjá að við erum að skilja. Börnin okkar eru númer eitt, tvö ogþrjú og viljum við biðja ykkur um að virða einkalíf þeirra. Takk fyrir skilninginn," segir í tilkynningu Shakiru.

Fregnir bárust að framhjáhaldinu og því var haldið fram að um væri að ræða móður Gavi leikmanns Barcelona en þær sögusagnir eru rangar.

Þau höfðu verið saman frá 2011 en þau kynntust við tökur á myndbandi við lagið Waka Waka sem Shakira söng fyrir HM 2010. Þau eiga tvo syni.

Fjölmiðlar erlendis segja að þau hafi búið í sitthvoru lagi undanfarnar vikur og Pique sé búinn að djamma mikið síðan þá.


Athugasemdir
banner