Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
Gunnar Már: Rautt spjald, nýr markmaður og fáum á okkur mark á sömu mínútu
Jökull: Kristófer algjörlega á deginum sinum og kláraði allt
Gústi Gylfa: Getum ekki byrjað leiki svona
Hemmi: Þú verður að opna töskuna og sjá hvað þú kemur upp með
Ibrahima Balde: Fyrsta þrennan síðan ég var 16 ára gamall
Venni: Við erum með þá í lás
Haddi: Hefðum getað fengið á okkur fjögur mörk í fyrri hálfleik
Bjarni Jó: Við berjumst fyrir því að fá Jón Daða
Dóri Árna mjög léttur: Ekki gleyma Kidda Jóns sem er að spila sínar fyrstu mínútur síðan í Október
Túfa: Enginn tími til að slaka á
Cecilía: Þetta er ný regla og allir eru að læra hana
Karólína: Hún var svo reið inn á vellinum
Landsliðsþjálfarinn fékk mörg svör - „Þetta var það sem stóð til boða"
Siggi Höskulds: Ég held að Fjölnir hafi ekki fengið eitt einasta færi
Adam Ægir nýtti tækifærið í botn - „Ekki búið að vera auðvelt"
Fékk gjöfina sem hún vildi á stórafmælinu - „Er samt bara 25"
Sveindís: Örugglega það besta fyrir landsliðið
Kenneth Hogg: Finnst í ár við vera miklu heilsteyptara lið
Haraldur Freyr: Þurfum bara að gjörusvovel að fara gyrða okkur í brók
Gunnar Heiðar: Litli bróðir er ekki svo lítill lengur
   mið 04. júní 2025 22:27
Anton Freyr Jónsson
Venni: Hönnum okkar leik fyrir teppið og þetta var svo sannarlega ekki teppi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mjög svekktur að tapa þessum leik eðlilega, þegar maður tapar þá er maður sár og svekktur." sagði Sigurvin  Ólafsson þjálfari Þróttar eftir tapið í Breiðholti í kvöld.


Lestu um leikinn: ÍR 2 -  1 Þróttur R.

„,Mörk geta komið hvenar sem er þannig lagað en ég á eftir að skoða þetta aftur. Þeir fá færi og svo strax annað og skora og þetta klassíska við vorum ekki vaknaðir, það gæti alveg vel verið en svo er þetta líka bara mörk geta komið hvenar sem er."

„Leikurinn þróaðist bara eins og maður reiknaði með nema auðvitað fá á sig mark svona snemma þá auðvitað reynir ÍR að stýra þessum leik eins og þeir eru góðir í, ógeðslega lengi að taka innköst, útspörk og hægja leikinn niður og bara drepa þetta niður eins og þeir eru góðir í og mér fannst dómarinn leyfa þeim alltof mikið að komast upp með það."

„Við hristum okkur til að komum örlítið beittari inn í síðari hálfleikinn, flýta leiknum og ná aftur stjórninni og mér fannst við bara mjög sprækir í síðari hálfleik og vorum eiginlega bara komnir með þennan leik í lófann en svona er sportið."

Sigurmark Leiksins þegar Þórhallur Ísak Guðmundsson fékk boltann undir sig eftir skot frá Óðinni Bjararsyni sem kom á 76.mínútu. 

„Þetta er liggur við tvær íþróttir sem við erum að spila hérna á Íslandi, við hönnum okkar leik svolítið fyrir teppið og þetta var svo sannarlega ekki teppi í dag, þetta var allaveganna mjög gróft og hólótt sem er bara staðreynd, það er spilað á grasi í þessari deild og það er bara erfiðara að reikna boltqann út og í þessu tilfelli var það tilfellið."

Nánar var rætt við Venna í sjónvarpinu hér að ofan.



Athugasemdir
banner