Kantmaðurinn efnilegi Yan Diomande er gríðarlega eftirsóttur og virðist helst vilja ganga til liðs við Paris Saint-Germain.
Liverpool hefur sýnt Diomande mikinn áhuga allt tímabilið en táningurinn sjálfur vill fara til PSG.
Diomande er aðeins 19 ára gamall og kom með beinum hætti að 23 mörkum í 36 leikjum með RB Leipzig á nýliðnu tímabili. Þá er hann með 3 mörk í 9 landsleikjum fyrir Fílabeinsströndina og er í hópnum sem fer á HM.
„PSG er fótboltalið sem ég hef elskað síðan ég var barn. Pabbi minn er stuðningsmaður PSG og ég dái þetta lið sem áhugamaður um fótbolta," sagði Diomande við L'Equipe.
„Það væri heiður fyrir mig að koma hingað og spila fyrir eitt af stærstu félagsliðum heims. Ég held að ég muni ekki þurfa mikinn aðlögunartíma í frönskumælandi landi.
„Þessa stundina er ég einbeittur að HM. Eftir mótið munu félagsliðin ræða saman og svo sjáum við hvað gerist. Ég er einbeittur að því að spila fótbolta."
Diomande er staddur í Nantes þessa stundina þar sem Fílabeinsströndin heimsækir Frakkland í síðasta æfingaleiknum fyrir HM. Diomande og félagar eru í erfiðum riðli ásamt Þýskalandi, Ekvador og Curacao.
Diomande er með fjögur ár eftir af samningi hjá Leipzig og vill þýska félagið fá 100 milljónir evra til að selja hann.
01.06.2026 21:17
Helsta skotmark Liverpool vill fara til PSG


