Fotbolti.net
27.07.26 - 15:52
Elvar Geir Magnússon

Motta nú talinn líklegastur til að taka við Ítalíu

Motta nú talinn líklegastur til að taka við Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

La Gazzetta dello Sport segir að ítalska fótboltasambandið hafi sett sig í samband við Thiago Motta og hann sé líklegastur sem næsti landsliðsþjálfari.

Motta er 44 ára fyrrum landsliðsmaður Ítalíu en það hefur gengið nokkuð misjafnlega á þjálfaraferli hans.

Hann stýrði Genoa og Spezia áður en hann tók við Bologna og kom liðinu í Meistaradeildina.
Hættu við Pirlo og sendiherra blandar sér í málið
TENGT EFNI

Hættu við Pirlo og sendiherra blandar sér í málið

Motta yfirgaf Bologna sumarið 2024 og tók við Juventus en var rekinn í mars 2025 eftir 18 sigurleiki, 16 jafntefli og átta tapleiki.

Ítalska fótboltasambandið fékk neitun frá Carlo Ancelotti og Pep Guardiola áður en það ákvað að ráða Andrea Pirlo en hætti svo skyndilega við það vegna tengingar hans við rússneskt veðmálafyrirtæki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.