Enska úrvalsdeildarfélagið Brentford er að reyna að kaupa kantmanninn Said El Mala úr röðum FC Köln í Þýskalandi en samningsviðræður ganga hægt.
El Mala er 19 ára gamall og átti frábært tímabil með Köln á nýliðnu tímabili, en þar er hann liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.
Talið er að Brentford og Köln hafi komist að samkomulagi um 50 milljón evra kaupverð og er einnig sagt að El Mala sé búinn að samþykkja samningstilboð frá Brentford, en bróðir hans er að tefja félagaskiptin.
Fjölskylda El Mala vill að Brentford semji einnig við eldri bróður Said sem heitir Malek El Mala. Malek er 21 árs gamall og leikur sem framherji en þykir ekki nógu góður fyrir aðallið Köln og spilar því með varaliðinu.
Brentford hefur ekki áhuga á Malek en gæti neyðst til að semja við hann til að fá yngri bróðirinn til sín. Það eru þó ekki taldar miklar líkur á því að Malek El Mala fái atvinnuleyfi til að skipta yfir til Englands, en það verður ekki vandamál fyrir yngri bróðirinn.
Fleiri félagslið eru áhugasöm um Said El Mala og hefur Brighton verið nefnt til sögunnar, en félagaskipti til Englands virðast ólíkleg útaf kröfum fjölskyldunnar sem fer með umboð fyrir báða bræðurna. Fjölskyldan telur mikilvægt að bræðurnir haldi sig saman, en þeir eru báðir fæddir í Þýskalandi.
Malek á einn leik að baki fyrir U19 landslið Þýskalands á meðan Said hefur verið algjör lykilmaður í U19 liðinu og spilar fyrir U21 liðið í dag þrátt fyrir ungan aldur.
27.05.2026 21:15
Brentford gerir rausnarlegt tilboð í liðsfélaga Ísaks





