Fotbolti.net
04.06.26 - 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líklegt að lykilmaður KR verði seldur

Líklegt að lykilmaður KR verði seldur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru talsverðar líkur á því að Amin Cosic verði seldur frá KR í sumar. KR hefur fengið tilboð í fleirtölu í leikmanninn, m.a. frá toppliði í Noregi og einnig frá öðru landi.

Á þessum tímapunkti hefur Fótbolti.net ekki upplýsingar um hvaða norska félag eða félög hafa boðið í kappann, en í síðasta mánuði var sagt frá því að aðilar frá bæði Viking og Molde hefðu komið og skoðað kantmanninn. Þá var einnig sagt frá því að njósnari svissnesku meistaranna í Thun hefði mætt til Íslands til þess mögulega að fylgjast með Amin.

Indriði Sigurðsson, meðstjórnarnandi í stjórn fótboltadeildar KR, gat í samtali við Fótbolta.net staðfest að það væri talsverður áhugi á Amin erlendis frá en vildi ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Þjálfari Viking skoðaði leikmenn á Kópavogsvelli
TENGT EFNI

Þjálfari Viking skoðaði leikmenn á Kópavogsvelli

Amin hefur leikið mjög vel í sókndjörfu liði KR og leikið marga varnarmenn andstæðingana grátt. Hann hefur komið með beinum hætti að fimm mörkum í Bestu deildinni, lagt upp eitt og skorað fjögur. Samkvæmt Fotmob hefur hann búið til 24 færi í leikjunum tíu í Bestu.

Hann er tvítugur örvfættur kantmaður sem uppalinn er hjá HK en fór til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2024. KR keypti hann svo síðasta vor og gekk hann í raðir félagsins í síðasta sumarglugga. Hann hefur styrkt sig mikið og hafa framfarir hans vakið mikla athygli. Hann lék í mars sinn fyrsta leik fyrir yngri landsliðin þegar hann kom inn á gegn Frakklandi í undankeppni EM með U21 landsliðinu.

Líklegt að lykilmaður KR verði seldur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.