Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rodri tekur ákvörðun eftir HM
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Rodri segist ekki vera búinn að taka ákvörðun um framtíð sína, en hann er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester City.

Rodri hefur verið að glíma við erfið meiðslavandræði síðustu tvö ár en þegar hann er heill heilsu leikur lítill vafi á að hann er meðal allra bestu miðjumanna heims, leikmaður í heimsklassa.

Hann hefur verið orðaður við brottför frá Manchester eftir sjö ár og 298 leiki fyrir stórveldið. Real Madrid hefur einna helst verið nefnt til sögunnar en ljóst þykir að hvaða félagslið sem er í heiminum myndi vilja nýta sér krafta Rodri.

Enrique Riquelme sem er að berjast við Florentino Pérez í forsetakosningum Real Madrid hefur lofað því að hann ætli að gera allt í sínu valdi til að krækja í Rodri ef hann verður kjörinn sem nýr forseti.

Rodri er 29 ára gamall og er að einbeita sér að heimsmeistaramótinu þar sem hann er lykilmaður í Evrópumeistaraliði Spánar.

„Ég er ekki að hugsa um neitt annað heldur en heimsmeistaramótið. Allar vangaveltur um mína framtíð eru aukaatriði, ég er bara einbeittur að HM. Það er eðlilegt að orðrómar fari af stað þegar leikmaður er að renna út á samningi en ég er mjög rólegur," segir Rodri, sem hefur unnið mikið af titlum með Man City og spænska landsliðinu, auk þess að hafa sankað að sér einstaklingsverðlaunum. Hann var valinn besti fótboltamaður heims 2024.

   04.06.2026 06:34
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri

Slapp
banner
banner