Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fim 04. júní 2026 21:12
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir: Amad gerði sigurmarkið gegn Frökkum
Spánn gerði jafntefli við Írak
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það voru afar óvænt úrslit sem litu dagsins ljós í æfingaleikjum dagsins þar sem stórþjóðir eru að leggja lokahönd á undirbúning fyrir heimsmeistaramótið.

Frakkland tók á móti Fílabeinsströndinni í næstsíðasta leik Frakka og síðasta leik Fílabeinsstrandarinnar fyrir flug til Bandaríkjanna og höfðu gestirnir óvænt betur.

Frakkar voru betri í fyrri hálfleik og náðu forystunni með marki frá Rayan Cherki, en hlutirnir breyttust þegar Didier Deschamps gerði fimmfalda breytingu á liði Frakka í hálfleik.

Gestirnir urðu betra liðið á vellinum og átti Guéla Doué eftir að ráða úrslitum. Hann jafnaði metin á 53. mínútu og lagði svo sigurmarkið upp fyrir Amad Diallo á 83. mínútu.

Til gamans má geta að yngri bróðir Guéla Doué sat allan tímann á varmannabekk Frakka. Sá heitir Désiré Doué og hefur verið að gera frábæra hluti með PSG.

Evrópumeistararnir tóku þá á móti Írak og náðu forystunni snemma leiks með marki frá Ferran Torres, sem bar fyrirliðabandið, en gestirnir voru ekki lengi að jafna.

Spánverjar voru talsvert sterkari aðilinn og sköpuðu nokkur góð færi en tókst ekki að endurheimta forystuna, svo lokatölur urðu 1-1.

Spánn og Írak mættust í síðasta leik beggja þjóða fyrir flug vestur yfir haf. Bæði lið eiga þó eftir að spila einn æfingaleik fyrir fyrstu umferð á HM.

Viktor Gyökeres skoraði í 2-2 jafntefli hjá Svíþjóð gegn Grikklandi og vann Íran gegn Malí er liðin mættust í Tyrklandi.

Frakkland 1 - 2 Fílabeinsströndin
1-0 Rayan Cherki ('45 )
1-1 Guela Doue ('53 )
1-2 Amad Diallo ('83)

Spánn 1 - 1 Írak
1-0 Ferran Torres ('16 )
1-1 Merchas Doski ('27 )

Svíþjóð 2 - 2 Grikkland
0-1 Kostas Tsimikas ('10 )
1-1 Viktor Gyokeres ('53 )
2-1 Gustaf Nilsson ('69 )
2-2 Georgios Masouras ('90 )

Íran 2 - 0 Malí
1-0 Saeid Ezatolahi ('12 )
2-0 Ramin Rezaeian ('55 )

Slóvenía 1 - 1 Kýpur
0-1 Marinos Tzionis ('7 )
1-1 Vanja Drkusic ('65 )
Rautt spjald: Panagiotis Andreou, Kýpur ('61)

Andorra 2 - 0 Liechtenstein
1-0 Alexandre Martinez ('73 )
2-0 Jordi Alaez ('80 , víti)

N-Írland 1 - 0 Gínea
1-0 Tom Atcheson ('9 )
Rautt spjald: Tom Atcheson, Northern Ireland ('72)

Búrúndí 0 - 0 Miðbaugs-Guinea

Lesótó 1 - 1 Kenía

Maldívur 0 - 3 Pakistan

Kambódía 4 - 0 Bútan

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner