Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 04. júlí 2021 12:04
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Yerry Mina fagnaði í miðri vítaspyrnukeppni
Yerry Mina
Yerry Mina
Mynd: EPA
Kólumbíski varnarmaðurinn Yerry Mina fór aðeins fram úr sér í leik Kólumbía og Úrúgvæ í 8-liða úrslitum Suður-Ameríkubikarsins í gær en hann bauð upp á fagn þegar vítaspyrnukeppnin var hálfnuð.

Það er engin framlenging í bikarnum og var því farið beint í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik.

David Ospina átti stórleik í markinu en Úrúgvæ klúðraði tveimur spyrnum á meðan Kólumbía nýtti allar sínar.

Yerry Mina tók þriðju spyrnuna og skoraði af miklu öryggi en hann fagnaði eins og liðið væri komið áfram í undanúrslitin. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hann gerir þetta því hann gerði það sama í leik með Barcelona gegn Espanyol í Ofurbikar Katalóníu árið 2018.

Fagnið var skemmtilegt en virtist skila ágætis árangri þar sem Kólumbía vann vítakeppnina og er komið í undanúrslit gegn Argentínu. Hægt er að sjá fagnið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner