Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. júlí 2021 15:01
Brynjar Ingi Erluson
Roma lánar Cengiz Under til Marseille (Staðfest)
Cengiz Under spilar í frönsku deildinni á næsta tímabili
Cengiz Under spilar í frönsku deildinni á næsta tímabili
Mynd: EPA
Tyrkneski kantmaðurinn Cengiz Under mun leika með Marseille á komandi tímabili en hann kemur á láni frá Roma.

Under eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Leicester City þar sem hann lagði upp tvö mörk í níu leikjum.

Leicester var með kaupréttinn á tyrkneska landsliðsmanninum en ákvað að nýta hann ekki.

Hann er nú mættur til Frakklands og er búinn að semja við Marseille en hann verður lánaður út leiktíðina og á félagið möguleika á að kaupa hann fyrir 12 milljónir evra í kjölfarið.

Marseille er stórhuga í sumar en félagið hefur þegar fengið Gerson, Konrad de la Fuente og Leonardo Balerdi. Þá eru þeir William Saliba og Matteo Guendouzi á leið til félagsins á láni frá Arsenal.
Athugasemdir
banner