Portúgalski vængmaðurinn Francisco Trincao er genginn í raðir Wolves á láni frá Barcelona. Enska félagið tilkynnir þetta í dag.
Trincao, sem er 21 árs gamall, spilaði 28 leiki fyrir Börsunga á síðustu leiktíð en hann skoraði þrjú og lagði upp þrjú fyrir liðið.
Hann kom til félagsins frá Barcelona á síðustu leiktíð og hefur spilað sex landsleiki fyrir Portúgal.
Wolves staðfesti í dag komu hans til félagsins. Trincao verður á láni út leiktíðina en Úlfarnir eru með kauprétt á honum og geta gert skiptin varanleg fyrir 25 milljónir punda.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Wolves fær í sumar en kólumbíski miðvörðurinn Yerson Mosquera var keyptur á 5 milljónir punda frá Atl. National á dögunum.
Athugasemdir