Fotbolti.net
04.07.26 - 00:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Kólumbíu og Gana: Markmannsskipti hjá Gana

Lawrence Ati-Zigi er klár í slaginn

Lawrence Ati-Zigi er klár í slaginn

Canon

Mynd: EPA

Kólumbía og Gana mætast í síðasta leik 32-liða úrslitanna á HM klukkan 1:30 í nótt.

Það eru tvær breytingar á liði Kólumbíu sem gerði markalaust jafntefli gegn Portúgal í lokaumferð riðlakeppninnar. Bakverðirnir Daniel Munoz og Johan Mojica koma inn fyrir Deiver Machado og Santiago Arias.

Það eru fjórar breytingar á liði Gana eftir tap gegn Króatíu í lokaumferð riðlakeppninnar.

Það er markmannsbreyting en Lawrence Ati-Zigi sem byrjaði gegn Panama í fyrstu umferð er kominn aftur í markið, hann þurfti þá að fara af velli í hálfleik. Jerome Opoku, Inaki Willams og Caleb Yrienkyi koma einnig inn. Benjamin Asare, Jonas Adjetey, Elisha Owusu og Kamaldeen Sulemana setjast á bekkinn.
Kólumbía: Vargas; Mojica, Lucumí, Sanchez, Munoz; Puerta, Lerma, Arias; Díaz, Cordoba, Rodriguez.

Gana: Zigi; Mensah, Opoku, Luckassen, Senaya; Partey; Semenyo, Sibo, Yirenkyi, Williams; Ayew.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.