Fotbolti.net
04.07.26 - 00:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið: Skoraði eitt af mörkum mótsins fyrir Grænhöfðeyjar

Cabral fagnar markinu.

Cabral fagnar markinu.

Canon

Mynd: EPA

Það er hreint út sagt ótrúlegur leikur í gangi í Miami þar sem Argentína og Grænhöfðaeyjar eigast við í 32-liða úrslitum á HM.

Argentína er ríkjandi heimsmeistari en Grænhöfðaeyjar er sú þjóð sem er lægst á heimslistanum af þeim liðum sem komust í 32-liða úrslitin.
Staðan var jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma og það þurfti því að grípa til framlengingar.

Þar kom Lisandro Martinez Argentínu yfir strax í upphafi en Grænhöfðaeyjar gáfust ekki upp. Sidny Lopes Cabral jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks framlengingarinnar. Hann skoraði með stórkostlegu skoti í fjærhornið vinstra megin í vítateignum.

Staðan er 2-2 þegar seinni hálfleikur framlengingarinnar er að fara af stað.

Sjáðu markið hér
Cabral og Lionel Messi í baráttunni.

Cabral og Lionel Messi í baráttunni.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.