Jón Þór: Eins og beljur á svelli í upphafi leiks


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stjarnan gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn FH í kvöld í bráðskemmtilegum leik. Stjörnumenn fengu fullt af færum til að skora sigur markið en það tókst ekki.
„Það er með ólíkindum, ótrúlegt að við höfum ekki fengið þrjú stig héðan, og við erum bara drullu, hundsvekktir með það," sagði Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar.
„Mér fannst við bara taka öll völd á vellinum hér í seinni hálfleik eftir fyrri hálfleik sem var frekar kaotískur og fram og til baka. Eins og við vissum að FH-ingar koma af miklum krafti og orku inn í leikinn. Fyrir þennan leik, þrír leikir án taps hjá þeim og búnir að stoppa ákveðna blæðingu sem hefur verið hér í sumar. Við vissum það alveg að við þurftum að taka fast á þeim, og okkur tókst það ekki alveg hér í byrjun leiks. En tökum svo öll völd á leiknum í seinni hálfleik, og með ólíkindum að við höfum ekki farið með þrjú stig hérna sem við áttum svo sannarlega skilið," sagði Jón.
FH-ingar byrjuðu leikinn vel og skoruðu snemma, að sama skapi var byrjun Stjörnunnar ekki góð.
„Mér fannst við bara vera í bölvuðu brasi með að fóta okkur. Fyrsta snerting á bolta léleg, sendingar oft á tíðum ekki góðar þegar við vinnum boltann. Fljótir að tapa honum aftur á þessum fyrsta tíu mínútna kafla. Mér fannst við bara vera eins og beljur á svelli hérna í upphafi leiks, og náðum ekki tökum á því. En ég er gríðarlega ánægður með seinni hálfleikinn, við sköpum okkur urmul færa og með ólíkindum að ná ekki að klára það," sagði Jón.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


