Fotbolti.net
04.08.16 - 22:45
Ívan Guðjón Baldursson

Rúnar Páll lofar Hólmbert: Feykilega góður skotmaður

Auglýsing
Rúnar Páll lofar Hólmbert: Feykilega góður skotmaður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var kátur með þriggja marka sigur sinna manna gegn Víkingi R. í kvöld.

Stjarnan er í 2. sæti eftir sigurinn, tveimur stigum frá toppliði FH, og skilur Víking eftir um miðja deild.
„Gríðarlega sterkur sigur á móti góðu liði Víkings þannig ég gæti ekki verið ánægðari,\" sagði Rúnar Páll áður en hann var spurður hvort hann teldi Víkinga hafa tekið stjórn á leiknum seinni part fyrri hálfleiks.

„Ég er ekki sammála því, þeir komust aðeins inn í leikinn og reyndu að jafna en það var aldrei hætta í okkar leik nema kannski hornspyrnan þar sem menn vilja meina að boltinn hafi kannski farið inn. Heilt yfir fannst mér við vera með yfirhöndina allan leikinn.\"

Rúnar er mjög sáttur með að hafa fengið Hólmbert Aron til liðs við sig á lánssamning frá KR.

„Hólmbert er allt öðruvísi senter heldur en Guðjón. Hann er hávaxinn og sterkur í loftinu, hann gefur okkur þá vídd að geta komið boltanum hátt fram. Hann er sterkur í föstum leikatriðum og feykilega góður skotmaður.\"

Rúnar segist hafa haft augastað á Hólmberti í einhvern tímann og segist hafa reynt að fá hann þegar Jeppe Hansen var seldur til KR, en án árangurs.

„Við vorum búnir að ræða möguleikann um að fá Hólmbert til okkar þegar Jeppe fór.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.