Chelsea kynnti í morgun enska unglingalandsliðsmanninn Carney Chukwuemeka formlega sem leikmann félagsins. Á þriðjudag var greint frá því að Chelsea hefði samið við Aston Villa um kaupverðið.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum greiðir Chelsea um 20 milljónir punda fyrir miðjumanninn sem skrifaði undir samning til 2028.
Chukwuemeka er 18 ára gamall og varð Evrópumeistari með U19 landslið Englands fyrr á þessu ári. Hann á þrettán leiki að baki fyrir aðallið Aston Villa.
„Carney er einn mest spennandi ungi leikmaður Evrópu svo við erum mjög spennt að sjá hann í eldlínunni á Stamford Bridge. Það er gleðiefni að hafa fengið hann til Chelsea og fá svona hæfileikaríkan einstakling í hópinn fyrir komandi tímabil og komandi ár," segir Todd Boehly, stjórnaformaður Chelsea.

Introducing your newest blue, Carney Chukwuemeka! 🤝#ChukwuemekaIsChelsea pic.twitter.com/Ojsh38bKBC
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 4, 2022
Athugasemdir