fim 04. ágúst 2022 18:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Margir á meiðslalistanum hjá Liverpool - Konate ekki klár
Mynd: EPA

Ibrahima Konate varnarmaður Liverpool þurfti að fara af velli vegna meiðsla í síðasta æfingaleik liðsins gegn Strasbourg um síðustu helgi.


Jurgen Klopp stjóri liðsins greindi frá því að þetta væri ekki mjög alvarlegt og hann vonaðist til að Konate yrði klár fljótlega.

Þessi 23 ára gamli franski varnarmaður staðfesti það á Instagram síðu sinni í kvöld að hann er ekki klár í slaginn að minnsta kosti fyrir leik helgarinnar gegn Fulham á laugardaginn.

„Því miður verð ég fjarverandi í einhvern tíma en það verður ekkert rosalega lengi," skrifaði Konate.

Liverpool verður án Calvin Ramsay, Kostas Tsimikas, Curtis Jones Alex Oxlade-Chamberlain, Diogo Jota og Caoimhin Kelleher á laugardaginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner