Kári Árna: Það er ekkert skrifað í stein

Gunnar Vatnhamar er orðaður við Vejle í Danmörku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við erum í ágætis málum, en vissulega erum við að skoða einhverjar styrkingar'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri Ragnarsson samdi við Víking fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar ökklabrotnaði í Ungverjalandi og verður frá næstu 3-4 mánuðina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tarik meiddist fyrir viku síðan og verður frá næstu 9-12 mánuðina.

Mynd: Hörður Ágústsson

Gunnar Vatnhamar er orðaður við Vejle í Danmörku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net sagði frá því í gærkvöldi að Gunnar Vatnhamar væri á förum frá Víkingi og færi til Vejle í dönsku B-deildinni.

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
„Það er alveg klárt, ef Sölvi velur hann í liðið. Gunnar er úti með liðinu í Sviss."
Framundan hjá Víkingi er útileikur gegn Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar. Í kjölfarið á Víkingur svo heimaleik gegn ÍBV á sunnudag og annan fimmtudag koma svissnesku meistararnir í heimsókn á Víkingsvöll.
Agressífur meiðslalisti
Kári var svo almennt spurður út í mögulega styrkingu á hópnum eftir meiðsli þeirra Óskars Borgþórssonar og Tarik Ibrahimagic í síðustu viku.
„Þetta eru pínu agressífur meiðslalisti sem við erum með, gríðarlega stórir póstar í félaginu. Það eru líka menn að byrja spila núna eftir erfið meiðsli, Stígur er varla búinn að spila leik í ár, sama með Daða Berg og svo er aðeins lengra síðan Aron Elís kom til baka eftir krossbandsslit - án þess að ég sé að væla yfir þessu."
„Óskar og Tarik meiddust og Elías Már þar á undan. Til þess erum við með stóran hóp, við erum núna með 19-20 leikfæra menn."
„Auðvitað erum við alltaf að skoða hvernig við getum bætt liðið. Við erum með 19-20 manns klára, allir reynslumiklir. Svo erum við með aðra á láni að auki. Við erum í ágætis málum, en vissulega erum við að skoða einhverjar styrkingar."
Fyrir tæpum mánuði síðan sleit Elías Már Ómarsson krossband en hann var þá markahæsti leikmaður deildarinnar. Í kjölfarið kallaði Víkingur Svein Margeir Hauksson til baka úr láni frá KA.
Hefur rætt við Keflavík
Eiður Orri Ragnarsson var fyrr í sumar keyptur til Víkings en þá var tilkynnt að hann myndi klára tímabilið á láni hjá Keflavík. Er einhver möguleiki að Eiður Orri komi strax til ykkar frá Keflavík?
„Það gengur held ég ekki. Aldrei að segja aldrei samt, ég hef átt það samtal við Jónas (Guðna Sævarsson, yfirmann fótboltamála hjá Keflavík) og mun mögulega reyna snerta á því aftur."
Atli Þór Jónasson er þá á láni hjá Fram og Björgvin Brimi Andrésson er hjá Gróttu í Lengjudeildinni.
Þú segir að þið séuð að skoða, þið hafið þá ekkert neglt niður að það þurfi leikmann eða tvo?
„Það er bara umræða sem á sér stað inn á skrifstofu hjá okkur. Ég ætla ekkert að tala um það opinberlega," segir Kári.

'Við erum í ágætis málum, en vissulega erum við að skoða einhverjar styrkingar'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri Ragnarsson samdi við Víking fyrr í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar ökklabrotnaði í Ungverjalandi og verður frá næstu 3-4 mánuðina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tarik meiddist fyrir viku síðan og verður frá næstu 9-12 mánuðina.

Mynd: Hörður Ágústsson

