Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. september 2021 13:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Falcao til Rayo Vallecano (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Kolumbíski framherjinn Radamel Falcao er genginn til liðs við Rayo Vallecano á Spáni.

Falcao var án félags eftir að hann rifti samningnum sínum við Galatasaray á dögunum.

Falcao er mikill markaskorari en hann fór frá uppeldisfélaginu sínu River Plate til Porto og þaðan til Atletico Madrid og síðan Monaco. Hann skoraði mikið af mörkum hjá öllum þessum liðum.

Hann reyndi fyrir sér í Ensku Úrvalsdeildinni á láni hjá Man Utd og síðan Chelsea en hann skoraði aðeins 5 mörk í 37 leikjum samanlagt.

Rayo er með þrjú stig í La Liga eftir þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner