Fotbolti.net
04.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Leeds hafnaði 35 milljónum á gluggadegi

Leeds hafnaði 35 milljónum á gluggadegi
Canon

Mynd: EPA

Svissneski sóknarleikmaðurinn Noah Okafor var eftirsóttur í sumar og hafnaði Leeds United nokkrum tilboðum í leikmanninn sinn.
Tilboðin komu frá ýmsum félögum úr ensku úrvalsdeildinni og víðar en Leeds vildi ekki missa Okafor, sem er 26 ára og með þrjú ár eftir af samningi.

Félagið hafnaði 35 milljónum punda á lokadegi félagaskiptagluggans til þess að halda Okafor, sem líður vel hjá Leeds og vill ekki skipta um félag.

Okafor skoraði 8 mörk í 28 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð og endaði tímabilið sérstaklega vel, með fjögur mörk og tvær stoðsendingar í síðustu sex leikjunum sem hann spilaði í deild og bikar.

Fofana fer til Sunderland - Leeds hafnaði tilboði í Okafor
TENGT EFNI

Fofana fer til Sunderland - Leeds hafnaði tilboði í Okafor

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.