Fotbolti.net
04.10.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Gosling til Blackpool á láni (Staðfest)

Gosling til Blackpool á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dan Gosling, miðjumaður Newcastle, hefur gengið til liðs við Blackpool á láni.

Lánssamningurinn gildir til áramóta.

Gosling kom til Newcastle frá Everton árið 2010 og búist var við miklu af honum.
Hann hefur hins vegar einungis verið tvívegis í byrjunarliði Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á ferli sínum hjá félaginu.

Á þessu tímabili hefur Gosling leikið tvo leiki með Newcastle en þeir voru báðir í enska deildabikarnum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.