Spænska félagið Levante ákvað í gær að reka Paco Lopez frá félaginu eftir 1-0 tap liðsins gegn Real Mallorca.
Levante hefur ekki unnið leik til þessa á tímabilinu og hefur aðeins náð sér í fjögur stig úr átta leikjum.
Liðið er í 18, sæti deildarinnar og fylltist mælirinn þegar Levante tapaði fyrir nýliðum, Real Mallorca, um helgina.
Paco Lopez var látinn fara frá félaginu. Hann tók við Levante í mars árið 2018 og stýrði liðinu í 15. sæti næstu tvö tímabilin. Besti árangur hans var tímabilið 2019-2020 er liðið lenti í 12. sæti.
Athugasemdir