Fabian Hurzeler stjóri Brighton er aðeins 31 árs gamall en hann hefur byrjað tímabilið ágætlega, nælt í níu stig úr sex leikjum.
Brighton og Tottenham eigast við um helgina en Ange Postcoglou sagði skemmtilega sögu af því þegar Hurzeler heimsótti æfingasvæði Tottenham á síðustu leiktíð en þá var hann stjóri St. Pauli í næst efstu deild í Þýskalandi.
„Hann var með ansi margar spurningar og ég gaf honum alltof mörg svör þá lét ég bara hina þjálfarana sjá um hann," sagði Postecoglou léttur í bragði.
Ef Postecoglou hefði vitað að hann yrði stjóri Brighton hefði hann þá boðið honum á æfingasvæðið?
„Já, ég hefði gert það. Það er ekkert að því að vera góð manneskja. Það kemur einhver og bankar upp á hjá þér og vill fá te þá býður þú honum inn. Hann er ekki að fara stela húsgögnum eða hnífapörum," sagði Postecoglou.