Fotbolti.net
04.10.26 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

Bellingham er framtíðarfyrirliði Englands

Bellingham er framtíðarfyrirliði Englands
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englendinga var himinlifandi eftir magnaðan sjö marka sigur á útivelli gegn Króatíu í Þjóðadeildinni í gær.
Tuchel: Dagur þar sem allt small saman
TENGT EFNI

Tuchel: Dagur þar sem allt small saman

Hann hrósaði Harry Kane og Jude Bellingham í hástert eftir að stórstjörnurnar tvær sýndu magnaða frammistöðu. Kane skoraði tvö og lagði annað upp á meðan Bellingham skoraði eitt og gaf stoðsendingaþrennu.

Kane er fyrirliði enska landsliðsins á meðan Bellingham er varafyrirliði og segir Tuchel ekkert því til fyrirstöðu að Bellingham taki við bandinu í framtíðinni.

„Hann hefur borið fyrirliðabandið á lokamínútunum í síðustu þremur leikjum og getur orðið aðalfyrirliði landsliðsins einn daginn. Það leikur enginn vafi á því," sagði Tuchel meðal annars um Bellingham áður en hann snéri sér að Kane.

„Harry Kane er framherji í hæsta mögulega gæðaflokki, það verður ekki annar eins og hann í sögu landsliðsins. Hann er einstakur leikmaður, hann er góður á öllum sviðum fótboltans."

Kane er 33 ára gamall, 10 árum eldri en Bellingham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.