04.10.26 - 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Crystal Palace í viðræðum við eftirsóttan Sarr

Hefur hjálpað félaginu að vinna enska bikarinn og Sambandsdeild Evrópu.

Mynd: EPA

Eberechi Eze fékk sölu til Arsenal en Sarr er ennþá hjá Palace.

Sky Sports greinir frá því að senegalski kantmaðurinn Ismaïla Sarr sé kominn í samningsviðræður við Crystal Palace eftir að félagið neitaði að selja hann í sumar.

TENGT EFNI
Palace hafnaði Liverpool - „Þeir gátu ekki haldið að þetta myndi ganga upp"
Liverpool sýndi Sarr mikinn áhuga en Palace vildi ekki samþykkja þær 45 milljónir sem stórveldið var tilbúið að borga fyrir Senegalann öfluga.
Þá hafnaði Palace tilboði frá tyrkneska stórveldinu Galatasaray, en núverandi samningur Sarr gildir til 2029. Sarr er 28 ára gamall og var svekktur að mega ekki ræða við Liverpool í sumar.
Líklegt er að Palace sé að bjóða Sarr launahækkun með nýjum samningi og gæti leikmaðurinn farið fram á að bæta við riftunarákvæði.
Sarr skoraði 21 mark í 45 leikjum með Palace á síðustu leiktíð.