04.10.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Viðar Ari á heimleið - Fjögur félög sýnt áhuga

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Heimildir Fótbolta.net herma að Viðar Ari Jónsson sé á heimleið eftir að yfirstandandi tímabili lýkur í Noregi.

TENGT EFNI
Hvað ef Fjölnir hefði haldið öllum sínum leikmönnum?
Viðar Ari er 32 ára bakvörður sem hefur leikið með HamKam síðastliðin þrjú ár, en þar áður lék hann fyrir Honvéd í Ungverjalandi og Sandefjord og Brann í Noregi auk þess að stoppa við hjá FH í tvígang.
Viðar Ari hefur byrjað fimm af síðustu sex deildarleikjum HamKam sem er í fallbaráttu í efstu deild norska boltans, en samningur hans við félagið rennur út um áramótin. Alls hefur hann spilað 15 leiki og byrjað 12 af þeim á þessu tímabili.
Bakvörðurinn þaulreyndi verður þá frjáls ferða sinna og ætlar að snúa aftur heim til Íslands. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Valur, Stjarnan, Þróttur og Breiðablik sýnt honum áhuga.
Viðar, sem lék síðast með FH fyrir þremur árum, hefur spilað 7 A-landsleiki á ferlinum. Hann er uppalinn hjá Þrótti R. og Fjölni.