Lið vikunnar í enska - Tveir frá Chelsea og Liverpool

Ben Foster (Watford) - Varði vel gegn Chelsea og var sjálfur nálægt því að skora í lokin!

Mynd: Getty Images

Kyle Walker (Manchester City) - Skoraði sigurmarkið gegn Southampton eftir að hafa lagt upp jöfnunarmarkið.

Mynd: Getty Images

Caglar Söyuncu (Leicester) - Átti enn einn stórleikinn í vörn Leicester og skoraði í sigri á Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

Lewis Cook (Bournemouth) - Hjálpaði Bournemouth að halda hreinu gegn Manchester United.

Mynd: Getty Images

Andy Robertson (Liverpool) - Skoraði jöfnuarmark Liverpool með skalla.

Mynd: Getty Images

John Lundstram (Sheffield United) - Nýtti tækifærið og skoraði tvö mörk gegn Burnley.

Mynd: Getty Images

Jonjo Shelvey (Newcastle) - Þakkaði traustið gegn West Ham og skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu.

Mynd: Getty Images

Jorginho (Chelsea) - Lagði upp mark á glæsilegan hátt gegn Watford.

Mynd: Getty Images

Joshua King (Bournemouth) - Skoraði sigurmarkið gegn Manchester United á laglegan hátt.

Mynd: Getty Images

Tammy Abraham (Chelsea) - Var enn og aftur á skotskónum með Chelsea.

Mynd: Getty Images

Sadio Mane (Liverpool) - Tryggði Liverpool sigur á Aston Villa með marki í blálokin.

Mynd: Getty Images





