
HM í dag - Heimsmeistararnir mæta Salah og félögum

Lionel Messi og hans menn í Argentínu spila við Egyptaland

Mynd: EPA

Lionel Messi og hans menn í Argentínu spila við Egyptaland

Mynd: EPA
Ríkjandi heimsmeistarar Argentínu mæta Egyptalandi klukkan 16:00 á Mercedes Benz-leikvanginum í Atlanta í Georgia í Bandaríkjunum.
Argentína hefur unnið alla leiki sína til þessa á meðan Egyptar hafa unnið tvo og gert tvö jafntefli.
Sigurvegarinn mætir annað hvort Sviss eða Kólumbíu sem eigast við klukkan 20:00 á BC-leikvanginum í Vancouver í Kanada. Báðar þjóðir hafa unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli, en Kólumbía aðeins fengið á sig eitt mark á meðan Sviss hefur fengið á sig þrjú.
Leikir dagsins:
16:00 Argentína - Egyptaland
20:00 Sviss - Kólumbía
Spáðu fyrir um úrslit útsláttarleikja á HM 2026, frá 8-liða úrslitum til lokaleiks. Því fleiri leiki sem þú giskar á rétt, því fleiri stig færðu. Efstu þátttakendur vinna allt að 100.000 króna gjafakort í Smáralind.


