Fotbolti.net
07.07.26 - 01:31
Brynjar Ingi Erluson

Freese fraus og Belgar með annan fótinn í 8-liða úrslitum

Matt Freese í leik með Bandaríkjunum

Matt Freese í leik með Bandaríkjunum

Canon

Mynd: EPA

Belgía er komið langleiðina í 8-liða úrslit eftir að Hans Vanaken kom liðinu í 3-1 gegn Bandaríkjunum í Seattle, en markvörður heimamanna kom sér í mikil vandræði fyrir utan teig.
Það var komin meiri ákefð í Bandaríkjamenn, sem voru í leit að jöfnunarmarki, en þá bauð Matthew Freese, markvörður liðsins, upp á hörmuleg mistök.

Langur bolti kom fram völlinn og Freese hljóp út á móti. Hann tók við boltanum en hikaði í hreinsuninni og missti hann frá sér á Hans Vanaken, sem skaut fyrir utan teig í átt að markinu.

Tim Ream, varnarmaður Bandaríkjanna, reyndi að bjarga á línu með hælspyrnu en hitti ekki boltann og hann lak í hægra hornið.

Allt saman mjög klaufalegt hjá Bandaríkjamönnum og útlitið orðið dökkt.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.