Fotbolti.net
05.01.21 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Gallardo við Rojas: Brjóttu ökklann á Tevez!

Marcelo Gallardo og Carlos Tevez

Marcelo Gallardo og Carlos Tevez

Canon

Mynd: Getty Images

Marcelo Gallardo, þjálfari River Plate í Argentínu, er ekki vinsæll eftir að hafa ráðlagt leikmanni sínum að ökklabrjóta Carlos Tevez, leikmann Boca Juniors í leik liðanna um helgina.
River Plate og Boca gerðu 2-2 jafntefli á laugardag en Carlos Tevez lagði upp jöfnunarmarkið undir lokin fyrir Sebastian Villa.

Robert Rojas var að dekka Tevez en tókst ekki að halda í við hann og úr varð jöfnunarmark.

Gallardo talaði við Rojas eftir leikinn og náðist á mynd segja við Rojast að brjóta ökklann á Tevez.

„Brjóttu á honum ökklann! Þú verður að herða þig drengur," sagði Gallardo við Rojas. Þessi ummæli féllu ekki í kramið hjá mörgum Argentínumönnum en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.