Fotbolti.net
05.01.21 - 20:10
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Spánn: Sevilla og Villarreal komust áfram

Spánn: Sevilla og Villarreal komust áfram
Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla og Villarreal eru komin í næsta umferð spænska bikarsins eftir sigra gegn C-deildarliðum Linares og Zamora.
Bæði Sevilla og Villarreal voru betri í fyrri hálfleik og leiddu í leikhlé en C-deildarliðin voru betri eftir leikhlé, þó án mikillar lukku fyrir framan markið.

Bæði Linares og Zamora sýndu frábærar rispur og voru liðin óheppin að skora ekki fleiri mörk.

Búist var við sigrum Sevilla og Villarreal en það er aldrei að vita í spænska bikarnum eftir að Getafe og Celta Vigo voru óvænt slegin út fyrr í dag.

Linares 0 - 2 Sevilla
0-1 Oscar Rodriguez ('45)
0-2 F. Lara ('47, sjálfsmark)

Zamora 1 - 4 Villarreal
0-1 Carlos Bacca ('31)
0-2 Y. Pino ('43)
1-2 C. Ramos ('45)
1-3 F. Nino ('73)
1-4 Raba ('88)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.