Ozan Kabak, varnarmaður Liverpool, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Fulham á sunnudag en hann á við meiðsli að stríða.
Kabak og Fabinho voru í hjarta varnarinnar í 1-0 tapi Liverpool gegn Chelsea í gær.
Nat Phillips var fjarri góðu gamni í gær en hann ætti að ná leiknum á sunnudag að sögn Jurgen Klopp.
Kabak og Fabinho voru í hjarta varnarinnar í 1-0 tapi Liverpool gegn Chelsea í gær.
Nat Phillips var fjarri góðu gamni í gær en hann ætti að ná leiknum á sunnudag að sögn Jurgen Klopp.
Ben Davies, miðvörður sem kom frá Preston í janúar, er einnig að verða klár eftir meiðsli en hann hefur ekki ennþá spilað með Liverpool.
„Hann þarf að aðlagast en hann er mjög góður leikmaður," sagði Klopp um Davies.
Athugasemdir