Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 05. mars 2023 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Man Utd: Ekkert óvænt - Varane klár
Varane var tæpur fyrir leikinn.
Varane var tæpur fyrir leikinn.
Mynd: Getty Images
Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir stórleik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni núna á eftir.

Það kemur fátt á óvart þegar byrjunarliðin eru skoðuð fyrir þennan erkifjendaslag.

Það er líklega stærst að Raphael Varane er klár í slaginn en það voru fréttir um að hann væri tæpur fyrir leik. Erik ten Hag, stjóri Man Utd, byrjar með sama lið og í úrslitaleik deildabikarsins um síðustu helgi.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, byrjar á miðsvæðinu með Fabinho og Harvey Elliott. Þeir hafa byrjað fjóra leiki saman á þessu tímabili og þeir hafa allir endað með sigri Liverpool.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Konate, Van Dijk, Robertson, Elliott, Fabinho, Henderson, Salah, Nunez, Gakpo.
(Varamenn: Kelleher, Milner, Firmino, Jones, Carvalho, Matip, Tsimikas, Bajcetic, Jota)

Byrjunarlið Man Utd: De Gea, Dalot, Varane, Martinez, Shaw, Casemiro, Fred, Fernandes, Weghorst, Rashford, Antony.
(Varamenn: Heaton, Maguire, Malacia, Sabitzer, Sancho, Wan Bissaka, Elanga, McTominay, Garnacho)
Athugasemdir
banner
banner
banner