Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. mars 2023 20:49
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu allt það helsta úr sögulegum stórsigri Liverpool á Man Utd
Mynd: Getty Images
Liverpool slátraði erkifjendum sínum í Manchester United, 7-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðin mættust á Anfield.

Cody Gakpo kom Liverpool á bragðið með fallegri afgreiðslu undir lok fyrri hálfleiks og opnuðust flóðgáttirnar síðan í þeim síðari.

Darwin Nunez skallaði Liverpool í 2-0 áður en Gakpo bætti við öðru marki sínu. Mohamed Salah skoraði síðan stórbrotið mark áður en Nuenz gerði annað mark sitt með skalla.

Salah og Roberto Fimrino bættu við tveimur mörkum áður en leikurinn var úti og lokatölur 7-0. Hægt er að sjá allt það helsta úr leiknum í spilaranum hér fyrir neðan.

Liverpool 7 - 0 Manchester Utd
1-0 Cody Gakpo ('43 )
2-0 Darwin Nunez ('47 )
3-0 Cody Gakpo ('50 )
4-0 Mohamed Salah ('66 )
5-0 Darwin Nunez ('75 )
6-0 Mohamed Salah ('83 )
7-0 Roberto Firmino ('88 )


Athugasemdir
banner
banner