Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. maí 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Völsungur fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)
Samara
Samara
Mynd: Völsungur
Völsungur hefur fengið til sín tvo leikmenn fyrir komandi átök í 2. deild kvenna.

Spænski markvörðurinn Mar Sanchez Celdrán mun leika með liðinu á tímabilinu.

Samara Lino mun einnig leika með liðinu en hún er brasilískur sóknarsinnaður miðjumaður og hefur leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

„Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir tímabilið að utan. Markvörðurinn Mar Sánchez Celdrán er ungur og efnilegur leikmaður sem kemur til með að verja mark Völsunga í 2.deildinni í sumar.

Einnig hefur sóknarþenkjandi miðjumaðurinn Samara Lino skrifað undir samning við Völsung um að leika með liðinu út leiktíðina. Samara kemur frá Brasilíu og hefur leikið í háskólaboltanum í USA. Hún er leikin, útsjónarsöm og marksækin og á klárlega eftir að styrkja sóknarleik liðsins í sumar.

Mikil ánægja er í herbúðum Völsungs með undirskriftirnar og væntir félagið mikils af þeim Mar og Samara í sumar,"
segir í tilkynningu Völsungs.


Mar Sanchez Celdrán
Athugasemdir
banner