Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. maí 2022 14:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davíð Snær í FH (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snær Jóhannsson er genginn í raðir FH frá ítalska félaginu Lecce. Davíð er kominn með leikheimild með FH og gæti spilað með liðinu gegn Val í 4. umferð Bestu deildar karla á morgun.

Hann verður tvítugur í júni og spilar sem miðjumaður. Hann gekk í raðir Lecce í janúar frá uppeldisfélagi sínu Keflavík.

Hjá Lecce spilaði hann með vara- og unglingaliði félagsins. FH hefur einnig verið orðað við Lasse Petry, fyrrum leikmann Vals og spilar núna með HB Köge í Danmörku, og Sigurð Egil Lárusson sem spilar með Val.

Faðir Davíðs Snæs er Jóhann Birnir Guðmundsson og er hann afreksþjálfari FH. Davíð á að baki fjörutíu leiki fyrir U15-U19 ára landsliðin.
Athugasemdir
banner
banner