Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 05. maí 2022 12:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eva Núra í FH (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eva Núra Abrahamsdóttir hefur fengið félagaskipti í FH og gæti verið með liðinu í opnunarleik Lengjudeildarinnar gegn Haukum í kvöld.

Eva er uppalin í Fylki en hefur einnig leikið með Haukum og FH í meistaraflokki. Hún var leikmaður FH tímabilin 2018-2020.

Eva er 28 ára miðjumaður sem lék sautján leiki og skoraði eitt mark með Selfossi í efstu deild í kvenna.

Árið 2016 lék hún sinn fyrsta og eina landsleik til þessa þegar hún kom við sögu gegn Póllandi í vináttulandsleik.

FH er spáð efsta sætinu í Lengjudeildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner