Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 05. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
„Þetta lið er algjör fokking brandari"
Mynd: EPA
Leikmenn Real Madrid fögnuðu sigrinum á Manchester City vel og innilega á Santiago Bernabeu í gær og létu að sér kveða á Instagram og Twitter.

Real Madrid á möguleika á að vinna Evrópukeppni meistaraliða/Meistaradeildina í fjórtánda sinn í sögu félagsins er það spilar við Liverpool í París þann 28. maí.

Spænska liðið hefur spilað gegn gríðarlega sterkum andstæðingum á þessu tímabili og hent út liðum á borð við Paris Saint-Germain, Chelsea og nú Manchester City.

Toni Kroos birti mynd af liðinu eftir leikinn gegn City í gær og skrifaði undir: „Þetta lið er algjör fokking brandari."

Rodrygo, Karim Benzema og fleiri leikmenn fögnuðu á samfélagsmiðlum en þær færslur má sjá hér fyrir neðan.








Athugasemdir
banner
banner
banner