Fotbolti.net
05.05.23 - 23:55
Sverrir Örn Einarsson

Ian Jeffs Engar áhyggjur ef við spilum eins og við gerðum í seinni hálfleik

Auglýsing
Ian Jeffs þjálfari Þróttar

Ian Jeffs þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttur mátti þola tap í fyrstu umferð Lengjudeildar karla þegar liðið mætti Leikni í Laugardal fyrr í kvöld.  Þrátt fyrir ágæta kafla þurftu lærisveinar Ian Jeffs að lúta í gras og niðurstaðan 1-3 tap. Jeffs mætti í viðtal til fréttaritara að leik loknum.

„Svekktur með tap í fyrsta leik á heimavelli. Við lögðum upp með að ná í þrjú stig og auðvitað vonbrigði að hafa ekki náð því.Ánægður með spilamennskuna í seinni hálfleik eftir fyrri hálfleik þar sem mér fannst við bera of mikla virðingu fyrir þeim.Heilt yfir ánægður með margt en það er nokkur atriði sem við þurfum að skoða og gera betur.“ Sagði Jeffs um leik sinna manna í dag.

Lið Þróttar fór hægt af stað en vann sig hægt og bítandi inn í leikinn er líða fór á fyrri hálfleik. Fannst Ian menn stressaðir í byrjun og mögulega með spennustigið of hátt stillt?

„Já spennustigið var kannski aðeins of hátt til að byrja með og við vorum að reyna hápressu sem var ekki að ganga. Vorum allt of ofarlega en samt ekki að setja nógu góða pressu á boltann. En síðustu 10-15 mínútur í fyrri hálfleik þá vorum við komnir inn í leikinn og í seinni hálfleik komum við inn af krafti. Mér fannst við jafna 1-1 sanngjarnt og vorum betra liðið þá en tvenn mistök varnarlega gáfu þeim tvö mörk.“

Þrátt fyrir tap er engan bilbug að finna á Ian Jeffs og Þrótturum sem hlakka til tímabilsins.

„Ef við sýnum sömu frammistöðu og við gerðum í seinni hálfleik þá erum við í góðum málum. Þessir leikmenn  sem eru í okkar liði eru að leika sína fyrstu leiki í Lengjudeildinni og kannski skiljanlega smá stress í þeim en ég hef engar áhyggjur ef við spilum eins og við gerðum í seinni hálfleik.“

Sagði Ian Jeffs en allt viðtalið má sjá hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.