Brasilíska landsliðið undrbýr sig fyrir HM í Katar um þessar mundir með því að spila æfingaleiki í Asíu.
Liðið vann Suður Kóreu á fimmtudaginn 5-1. Neymar skoraði tvö, Coutinho, Gabriel Jesus og Richarlison eitt mark hver.
Liðið æfði í gær til að undirbúa sig fyrir seinni æfingaleikinn í þessum landsleikjaglugga, gegn Japan á morgun.
Það sauð uppúr á æfingunni þegar Richarlison og Vinicius Jr lentu saman. Neymar og Dani Alves náðu að stíga inn í og slíta þá í sundur áður en fór verr.
Það eru bara nokkrir dagar síðan Richarlison, sem leikur með Everton fagnaði sigri Real Madrid á Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar en Vinicius skoraði sigur markið í þeim leik. Það er ekki vitað hvað olli þessum slagsmálum.
Athugasemdir